Í nógu að snúast
Já það er sko nóg að gera hjá manni þegar maður er svona nýbökuð móðir. Það eru labbitúrar, heimilisstörfin, mömmuhittingur, baka, taka á móti gestum, fara í heimsóknir og svo þess á milli er ég með Dagbjörtu hangandi á spena :) Hrafn er búinn að vera rosa dugegur að vinna svo að við mæðgur pössu m okkur bara að hafa nóg fyrir stafni svo að okkur leiðist ekki. Það fer rosa vel um okkur í Skútagilinu en maður hefur einhvern veginn ekki enn komið sér almennilega fyrir, það vantar enn allt á veggina og svona svo að það er hálf stofnanalegt.. en samt kósý, ég er bara að reyna að fá tilfinninguna fyrir því hvar hlutirnir eiga að vera.
En núna er versló og ekki er maður hauslaus niðrí í bæ þessa helgina frekar en síðustu 9 mánuði, en það er bara alveg ágætt. Nóg annað að gera og tala nú ekki um þar sem að allir vinir manns eru nú komnir með familíu og svona.. í gær var bara hópferð í bæinn, Gudda og co, Dóra og co og Elma og co og við fórum bara í tivolí og svona sem var hreinasta snilld, merkilegt hvað það er alltaf gaman. Svo var bara grill og buzz hjá Elmu og co. Í dag er svo hugmyndin að skella sér í Grundardal, veðrið er ekkert til að hrópa húrra fyrir en það þarf ekki að skemma fyrir svo að við sjáum hvað mannskapurinn ákveður að gera :)
Annars erum við mæðgur að fara að skella okkur til Færeyja 14. ágúst með mömmu og ömmu, þar verða fjórir ættliðir á ferð og skylst mér að ættmennin sláist um að hýsa okkur, þetta er pennandi samsetning og spennandi að sjá hvernig þetta ferðalag fer :) Ég er allavega búin að finna eina búð sem ég ætla að fara í og skoða einn stein sem ég sá síðast þegar ég var 6 ára og svo má guð vita hvað okkur dettur í hug að brasa... en þið fáið fréttir af því síðar.
En ég segi bara over'n out og hafið það gott hvar sem þið eruð og hvað sem þið eruð að gera :)
Kveðjur úr Skútagilinu







